Litli og stóri... Hilmir og Valtýr

23 janúar 2006

Situr (næstum) alveg sjálfur !

Posted by Picasa Já hlutirnir gerast hratt í heimi hér ! Ingó sat með Hilmi á gólfinu í gærkvöldi og skyndilega tók hann eftir því að drengurinn væri nú bara nokkuð stöðugur sitjandi þarna sjálfur. Prófuðum að gefa honum örlítinn stuðning með brjóstagjafapúðanum og hann unir sér svona líka rosalega vel :)
Er ósköp fegin þessum framförum því hann er eiginlega alveg farin að taka fyrir það að liggja flatur (hvort sem er magi eða bak) og vil helst vera í göngugrindinni eða TripTrappstólnum sínum. Má ekki missa af neinu sko ;)

1 Comments:

  • Svakalega er hann flottur snáðinn.
    Önnur not fyrir brjóstagjafa púðann.
    Kossar frá Ömmu í Þverásnum

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:11 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home