Litli og stóri... Hilmir og Valtýr

14 júní 2006

Ári síðar.... afmælisstelpukona enn á ný

Posted by Picasa
Enn eitt árið liðið og ég kemst markvisst nær því að verða þrítug ! Akkúrat ár síðan þessi mynd var tekin af mér með Hilminn innanborðs á afmælisdeginum mínum. Ýmislegt fleira búið að breytast annað en það að ég sé orðin mamma lítils gríslings, er til dæmis komið með STUTT hár (allavega miðað við hversu sítt það er búið að vera undanfarin árin) og er enn að venjast van-lengdinni á því.
Við fórum öll fammilían út að borða í kvöld í tilefni dagsins. Völdum barnvænan en þó fínan veitingastað sem við eigum pottþétt eftir að fara á aftur ! Þarna var leikhorn fyrir Hilmi og bæði þjónar og aðrir gestir kipptu sér ekkert upp við ærslaganginn í drengnum. Hilmir fékk meira að segja barnamatinn sinn (upphitaðan úr krukku sem við tókum með okkur) fram borin á voða fínan disk og lagt var á borð fyrir hann tvær gerðir af skeiðum sem hann "notaði" óspart.

1 Comments:

  • híhí, ekkert smá fín mynd af ykkur! og þú ert rosalega sumarleg og fín bara með þessa VAN-sídd! *fliss* mér finnst vera SVO langt síðan þú varst ólétt :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:53 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home