Litli og stóri... Hilmir og Valtýr

09 febrúar 2006

Þröskuldur ? Hvað er það ??

 Posted by Picasa Posted by Picasa

Hilmir er orðin ansi duglegur að koma sér um íbúðina í göngu(hlaupa)grindinni sinni og dundar sér við að skoða sig um að vild eða ellta okkur foreldrana milli stofu, eldhús og gangs.
Í dag var hann að kíkja á þvottakörfuna í ganginum þegar hann skyndilega sá einhvað áhugavert inni á baði og ætlaði þangað en... viti menn !!... komst ekki !! Hann eyddi alveg óskaplega miklum tíma í að ráðast á þröskuldinn og reyna að koma sér yfir en varð að sjálfsögðu engu nær. Þegar ég var búin að fylgjast nógu lengi með honum og ætlaði að taka mynd sá hann mig inní herbergi og ætlaði til mín... *dúnk*... komst ekki útaf þröskuldinum þar heldur. Þarna óð hann milli mín og baðherbergisins en komst náttlega að hvorugu.... bévítans þröskuldar...

1 Comments:

  • HAHA! æhh.. greiið.. hlýtur að vera erfitt að vera svona lítill í svona skrítnum heimi! sé þetta alveg fyrir mér!! :D

    By Anonymous Nafnlaus, at 9:39 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home