Litli og stóri... Hilmir og Valtýr

03 júní 2007

Kronborgsgrändin heimsótt

Fórum í gær að heimsækja nýju íbúðina okkar í fyrsta skipti eftir að hún var formlega orðin "okkar". Fyrri eigendur fluttir út, búið að þrífa og við byrjuð að borga húsaleiguna. Hilmir var sá fyrsti til að stíga fæti innfyrir þröskuldin og eyddi svo dágóðum tíma í að skoða öll herbergi, opna alla skápa, prófa kranana á baðherbergjunum, setjast á klósettið og kveikja á eldavélahellunum. Á meðan mældum við Ingó fyrir gluggatjöldum (og auðvitað eru allir gluggar í annari stærð en það sem við eigum núna svo við þurfum að redda ÖLLU nýju!) og skipulögðum hvaða húsgögn við þyrftum að losa okkur við og hvað yrði keypt í staðinn.
Í lokin smelltum við af einni fjölskyldumynd með útsýnið úr stofuglugganum í baksýn. Svalirnar eru í sömu átt svo loksins loksins fáum við sólglaðar svalir !! Stefnum á morgunmat á svölunum fyrsta daginn eftir innflutning ;)
Posted by Picasa

1 Comments:

  • Til hamingju með nýju íbúðina! :) þið verðið svo að smella myndum af henni í bak og fyrir þegar þið eruð flutt :D

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:54 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home