Litli og stóri... Hilmir og Valtýr

19 maí 2009

Bara smááá munur

Eins og áður hefur verið sagt er komið vor til Stokkhólms. Ekki kannski blússandi sumar ennþá en jú sólin skín vissulega og það getur verið ansi vel heitt suma daga. Leikskólinn hefur óskað eftir að börnin séu höfð í langerma bolum eins lengi og hægt er því að sólin sé stundum svo sterk og þá virka föt einsog sólarvörn fyrir litlu hvítu kroppana.

Eins og myndin sýnir (bókstaflega svart á hvítu) þá er Hilmir komin með þessa líka fínu bóndabrúnku ;) Er eiginlega alveg bráðfyndið að sjá hann kviknakin í baði. Svona líka sjálflýsandi-kríthvítur á öllum kroppinum nema bara á andliti og höndum.
Posted by Picasa

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home