Litli og stóri... Hilmir og Valtýr

16 maí 2009

Nýjasta áhugamálið

Nýjasta nýtt hjá Hilmi er að greiða/bursta hár. Sitt eigið, okkar, á dúkkunum sínum (já auðvitað á hann nokkrar Barbiedúkkur einsog jafnréttisbarni sæmir). Getur setið útá svölum og greitt sér um hárið í fleiri mínútur. Vatnsgreiðslur eru þá líka vinsælastar.
Pabbi hans fékk nóg um daginn á þessum greiðsluleik (hann var sko módelið) og bað hann að greiða einhverjum öðrum. "Geturu ekki greitt MeMe í staðinn?"
Hilmir er nú ekki svo vitlaus og svaraði þá bara "Neeeei pabbi... Meme er með pels... það má ekki greiða því!"

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home