Litli og stóri... Hilmir og Valtýr

11 nóvember 2005

12 vikna ofurstrumpur


Á morgun rennur upp stór dagur í lífi okkar litlu fjölskyldunnar; Hilmir verður 12 vikna !! Allt sem var búið að vera erfitt varðandi þennan elsku litla einstakling okkar á eftir að "eldast af" honum við þetta blessaða þriggja mánaða mark. Ætlum svosem ekkert að halda í okkur andanum og bíða eftir einhverri svakabreytingu, nógu miklar breytingar hafa nú verið uppá síðkastið og þær flestallar jákvæðar. Vonum bara að þær haldist og að hann haldi áfram að fara fram í þroska og elskulegheitum almennt.
Það sem Hilmi Viktor, þriggja mánaða finnst gaman;
- liggja í rúminu sínu á morgnana og spjalla við froskana á óróanum
- láta brosa til sín
- fá að drekka ÁÐUR en hann biður um það
- fá að prófa að stíga í fæturnar, verður stífur einsog spýta við það og finnst það ofsa spennandi
- láta lesa uppáhalds bókina sína fyrir sig (Boken om bajs, þýðing = kúkabókin... var gjöf!)
- borða/sleikja/slefa á hendur, sínar eigin og annara
- fara í stóra baðkarið (balinn er orðin of þröngur þegar hann er búin að prófa frelsið sem fylgir stóra baðkarinu)
- láta halda á sér
Það sem Hilmi Viktor, þriggja mánaða finnst EKKI gaman;
- láta leggja sig niður í vagninn til að sofa (þó hann sé þreyttur)
- þurfa að liggja í vagninum og láta svæfa sig þegar hann vill ekki sofna (þó hann sé þreyttur)
- þurfa að bíða eftir matnum sínum meira en 1 mínútu
- sitja í bílstólnum að kvöldi til (sér ekki baun!)

Posted by Picasa

5 Comments:

  • jiminn hvað maður er orðinn fullorðinslegur!! :) hlakka til að sjá ykkur um jólin! :D

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:07 f.h.  

  • Meira rahgatið þessi strumpur - hlakka rosalega til að sjá ykkur í desember. Eitt fyrir Beggu mömmu - ef þú skyldir vera farin að þrá smá bling og glamúr - smelltu þér í bæinn og keyptu þér -Fairy mascara - frá Guerlain - hann er geðtruflaður - BLING BLING !!!!
    kveðja
    Ólöf

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:03 e.h.  

  • Ekkert smá flottur strákur !!

    Varðandi fötin þá eru Hjölli og Stína búin að opna búð á Laugarveginum sem heitir Sipa og heimasíðan er sipa.is kíktu endilega á hana.
    Kær kveðja,
    Guðbjörg

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:31 e.h.  

  • Oh! -hvað maður er sætur! :)

    Alltaf jafn gaman að fylgjast með ykkur á blogginu!

    knúsar, Sandra

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:25 e.h.  

  • O my godness! Im so pretty :)

    Æðislegur strákur!
    Hlakka til að sjá ykkur um jólin

    kv Taby

    By Anonymous Nafnlaus, at 5:36 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home