Litli og stóri... Hilmir og Valtýr

20 mars 2006

Fattarinn ekki alveg komin í gang....





Dressuðum Hilmi upp í "matarsvuntu", stöppuðum banana í barbapabbaskálina hans og festum við borðið með sogskál. Biðum svo spennt eftir að sjá hvað snillinn myndi gera.
Hann eyddi dágóðum tíma í að hræra í maukinu í skálinu og sullast með því og ég held að fæst hafi ratað rétta leið. Fannst þetta samt voða spennandi og endaði á því að draga þá ályktun að best væri að "cut out the middle man" (hendurnar á sér) og færa muninn beint að skálinni. Endaði á því að líta út einsog svín við trog.
Bananadrengurinn er annars 7 mánaða í dag orðin. Tíminn líður... hratt/hægt og örugglega ;)

Posted by Picasa

1 Comments:

  • Til hamingju með daginn Hr. Strumpur. Við söknum þín og foreldra þinna mikið eftir að við fluttum til Íslands aftur. Við sjáumst nú vonandi fljótlega.
    Óli, Íris og Emilía.
    PS: Við erum farin að blogga aftur !

    By Blogger Iris og Oli, at 1:21 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home