Litli og stóri... Hilmir og Valtýr

13 september 2008

Real boys wear pink.... dresses !

Þarna er Hilmirinn í bleika "leikfimis"-outfittinu sínu. Hann er nefnilega einsog ég hef áður nefnt í leikfimi á laugardögum. Þar er nátturulega ekki hægt að vera bara í venjulegu fötunum sínum heldur á maður að vera í leikfimisfötum. Hilmir tók það skrefinu lengra og óskaði hátt og snjallt eftir því að fá SVONA! (og benti ákveðin á bleikan ballerínubúninginn í búðinni... og þvínæst benti hann á samsvarandi skó)

Það kippti sér engin upp við klæðnaðinn í næsta leikfimitíma. Hvorki fullorðnir né börn, hvorki stelpur né strákar. Bara jákvæð orð og falleg bros.
Enda hvernig er annað hægt en bráðna þegar hann er svona æðislegur þessi litli ballerínustrákur sem ég á ? ;)
Posted by Picasa

1 Comments:

  • Já, Begga hann er verulega sætuur í þessu verð ég að viðurkenna.
    Krúttlegasta mynd sem ég hef séð að honum nýlega..! :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:33 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home