Litli og stóri... Hilmir og Valtýr

30 júlí 2007

Boys will be boys



Hilmir er strákur. Þessvegna er kannski ekkert rosalega skrýtið að hann skuli vera með einlægan áhuga á vinnuvélum ýmiskonar þessa dagana. Eftir að við færðum barnabílstólinn hans svo hann snýr í akstursstefnu sér hann svo rosalega vel útum gluggan á bílnum og nýtur þess í botn að kíkja eftir gröfum, traktorum og öðrum spennandi bíltækjum. Getum loksins farið í langa bíltúra !
Uppáhalds sjónvarpsefnið er í sama dúr. Þáttur sem kallast "Stora maskiner" og fjallar ósköp einfaldlega um vinnuvélar. Hver þáttur tileinkaður sérstöku tryllitæki og sýnir t.d. ítarlega hvað grafan gerir. Mjög athyglisvert að Hilmirs mati.
Fyrir extra forvitna og vinnuvélaáhugasamt fólk má sjá þættina á netinu;

Storar vinnuvélar !

2 Comments:

  • Hæhæ!
    Við vildum bara þakka kærlega fyrir linkinn á "Stora maskiner" en Víðir Freyr er einmitt mikill aðdáandi þessa þátta, verður alltaf voða vonsvikinn á laugardagsmorgnum þegar þátturinn er búinn á stöð 1! ;)
    Já og innilega til hamingjum með nýju íbúðina, frábært hvað allt gengur vel hjá ykkur í Svíaríkinu!
    Biðjum rosa vel að heilsa...
    Kveðja, Karen og strákarnir.

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:36 e.h.  

  • Hæ, hæ! Já, það er ótrúlegt hvað vinnvélar heilla og er það greinilega ekki kynbundið því Emilía er alveg óð líka, ótrúlega fyndið hvað grafa eða traktor geta glatt þau mikið. Jæja, við leggjum af stað til Stokkhólms á morgun og hlökkum mikið til að sjá ykkur.

    Knús,
    ÍB, ÓM og EÞÓ

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:46 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home