Litli og stóri... Hilmir og Valtýr

02 mars 2008

Hilmir elskar....


Kjötbollur, pizzu, hlaupahjólið sitt, kex, ís og áfram mætti telja..... Og já, þessar yfirlýsingar koma í heilum setningum "Ég ÄLSKAR (insert word) "


Í dag fékk ég þó í fyrsta skipti að heyra það sem bræðir hvert mömmuhjarta. "Ég ÄLSKAR mömmu!" Og því fylgdi klapp, strokur, höfuðið lagt í mömmukjöltu og litið á mig með hvolpaaugum. Svo einlægt. Sérstaklega afþví því fylgdi engin beiðni um einhvað sem hann mátti ekki fá. Býst við að það komi seinna.

Lifði á þessu það sem eftir lifði dags.... ef ekki lengur ;)

1 Comments:

  • Ooohhh! Það er ekkert betra en að fá að heyra þessi orð frá litla krílinu manns sem maður elskar sjálfur svo heitt að það eru engin takmörk fyrir því. Verð bara að segja að þau Emilía og Hilmir eru ótrúlega samstíga því ég fékk að heyra þessa himnesku setningu frá Emilíu í gærkvöldi í fyrsta (og enn sem komið er eina) sinn !! Ótrúlegt en satt.
    Puss o. Kram
    Íris

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:12 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home