Litli og stóri... Hilmir og Valtýr

03 nóvember 2007

Fyrsti snjórinn

Loksins kom snjórinn og þá var nú eins gott að við vorum búin að vera að prufukeyra kuldagallann á Hilmi. Svo í morgun var sáttur og glaður strákur sem fór út að leika með pabba sínum í snjónum....
Til gamans má geta að kuldagallinn er afurð hagsýni minnar frá því í janúar en þá sjénsaði ég, hvorki í fyrsta né síðasta skiptið, og keypti 2 stærðum stærra en venjulega og græddi heil 50% í afslátt á þessum líka fína galla. Alltaf jafn gaman að sjá hvað hann stækkar upp í fötin, í janúar týndist hann næri því í þessum galla. Vel stór reyndar ennþá en passar nú samt.
Posted by Picasa

2 Comments:

  • Hæ Begga. Fyrir margt löngu (í sumar) hrundi hotmail-addressan mín og með því allir msn-kontaktar. Ég hef búið mér til nýja og þætti gaman ef þú addaðir mér: huldagislad@hotmail.com

    Chao,
    Hulda

    By Anonymous Nafnlaus, at 11:19 f.h.  

  • Ansi ertu séð, Begga, að kaupa föt hálft ár fram í tímann! Sé núna eftir því að hafa ekki keypt Po.P gallann á hálfvirði í janúar. Hann kostar 1200 kall núna.

    By Blogger Unknown, at 9:53 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home